Enn í gírnum.

Gengur þokkalega að halda mig við hollustuna, hef farið út að ganga daglega og borða voða hollt.  Örlítil hliðarspor eins og gengur, en ekkert alvarlegt þó.

Fiskur og grænmeti í matinn áðan, ég hefði allt eins getað borðað loft, ég meina það.  Gaula í mér garnirnar.Whistling

Þýðir ekki að vola yfir því, er farin út að ganga!  Ciao!  


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Dugnaðurinn alltaf í þér kona! Helvítis hollustan er ekkert alltaf spennandi, en manni líður svo fjandi vel þegar maður heldur sig við hana 

Hafdís (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 23:48

2 identicon

Flott hjá þér að fara alltaf út að labba, ekki nenni ég því!

Dídí (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 10:41

3 identicon

Gaman að heyra að það gengur vel... Maður er allt of latur að fara út að labba!

Heiða (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 19:42

4 Smámynd: Hugarfluga

Ertu ennþá úti að ganga, kona??

Hugarfluga, 12.4.2008 kl. 23:10

5 Smámynd: Helga Lúthersdóttir

HVA !!! Búið að taka kúrfuna á hausnum , með kg og cm dæminu hmmm  það veit ekki á gott. út að labba með kona ! þýðir ekkert hangs ! Það þýðir ekkert að slóra þegar maður vill vera góður við sjálfan sig. Þú mátt ekki láta þína velferð sitja á hakanum og hana nú !!!

ég geng 3-5 KLUKKUTÍMA á dag og ekki er ég í átaki

knús !!!

Helga Lúthersdóttir, 15.4.2008 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband